Græn skuldabréf
![Græn skuldabréf - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_listasafn_200504_018.jpg?itok=eJ8ChqVy)
Lögberg
Stofa 101
Græn skuldabréf: Samspil sjálfbærra fjármála og skuldabréfamarkaða við útgáfu grænna skuldabréfa
Opin vörn meistararitgerðar Guðrúnar Gígju Sigurðardóttur í lögfræði
Græn skuldabréf hafa rutt sér til rúms sem mikilvægur liður í sjálfbærum fjármálum, en þau fela í sér að útgefandi undirgengst að ráðstafa söluandvirði skuldabréfs til fjármögnunar umhverfistengdra verkefna. Heimar sjálfbærra fjármála og hefðbundinna skuldabréfamarkaða mætast í grænum skuldabréfum. Í hraðri þróun grænna skuldabréfa hafa markaðsaðilar þurft að semja sínar eigin leikreglur sem hafa ekki lagagildi og skortir formlegt eftirlit. Á sama tíma eru skuldabréf hefðbundnir fjármálagerningar og við útgáfu þeirra ríkir lagaumgjörð fjármálamarkaða, frá frumútboði skuldabréfa og þar til þau hafa verið tekin til viðskipta á skipulegum markaði.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um gildandi réttarumhverfi grænna skuldabréfaútgáfna, með tilliti til sjálfbærra fjármála og skuldabréfamarkaða auk samspils þessara þátta. Einnig verður vikið að fyrirhugaðri lögfestingu Evrópusambandsins á staðli fyrir svonefnd evrópsk græn skuldabréf. Fjallað verður um kerfislegan lögmætisvanda grænna skuldabréfa, möguleika fjármálamarkaðarins á styrkingu trúverðugleika græna skuldabréfamarkaðarins, grænar samningsskuldbindingar og framtíðarsýn. Helstu þættir rannsóknarinnar og helstu niðurstöður verða dregnar saman.
Að loknu erindi Guðrúnar Gígju verður boðið upp á fyrirspurnir og umræður.
Leiðbeinandi: Friðrik Ársælsson, aðjúnkt og lögmaður
Prófdómari: Helga Melkorka Óttarsdóttir, lögmaður
Öll velkomin.
Opin vörn meistararitgerðar Guðrúnar Gígju Sigurðardóttur í lögfræði
![Græn skuldabréf](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/2k8q8.jpg?itok=auAXH97A)