Verkfræði í ofurtengdum heimi - 50. ráðstefna NORDTEK
![Verkfræði í ofurtengdum heimi - 50. ráðstefna NORDTEK - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_haskolatorg_181122_001.jpg?itok=uRBZbk3e)
Gróska
Fyrirlestrarsalur
50. ársfundur og ráðstefna NORDTEK mun fara fram dagana 8. til 10. júní og mun sjálf ráðstefnan fara fram þann 9. júní í Grósku.
Þema ráðstefnunnar, sem fer fram á ensku er: Engineering and a Hyper-Connected World.
NORDTEK, stofnað í Reykjavík 1973, er samfélag rektora og forseta verkfræði- og tækniháskóla á Norðurlöndunum og Eystrarsaltsríkjunum og samanstanda af 28 skólum í átta löndum. Hlutverk NORDTEK er að þróa og styrkja alþjóðlega stöðu skólanna á sviði verkfræðináms og rannsókna, auk þess sem NORDTEK styður við nemendur í verkfræði sem hyggja á skiptinám á sínum námsferli.
Háskóli Íslands (Verkfræði- og náttúruvísindasvið) er gestgjafi ráðstefnunnar á 50. afmælisári félagsins og mun vegleg ráðstefnudagskrá fara fram þann 9. júní í Grósku - hugmyndahúsi. Dagana fyrir og eftir ráðstefnuna munu vinnuhópar innan NORDTEK funda, þar á meðal hópur nemenda frá háskólunum, starfsfólk í stjórnsýslu og rektororar og forsetar háskólanna.
Skráning á sjálfa ráðstefnuna er öllum opin og eru áhugasöm hvött til að kynna sér dagskrá ráðstefnunnar á heimasíðu hennar:
Ráðstefnugjald er 400 Evrur
50. Ráðstefna NORDTEK fer fram þann 9. júní í Grósku Ráðstefnudagskrá og skráning: nordtek.hi.is
![Verkfræði í ofurtengdum heimi - 50. ráðstefna NORDTEK](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/735vz.jpg?itok=Yb5X54Zn)