Málþing um tilvísun
![Málþing um tilvísun - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_byggingar_190812_001.jpg?itok=arLHIWKs)
Hvenær
1. júní 2022 9:00 til 3. júní 2022 17:00
Hvar
Oddi
Stofa 202
Nánar
Aðgangur ókeypis
Heimspekistofnun Háskóla Íslands stendur fyrir alþjóðlegu málþingi um nýlegar kenningar í hugspeki, málspeki og merkingarfræði. Þingið stendur yfir frá 1. júní til 3. júní og meðal fyrirlesara eru Imogen Dickie (Toronto-háskóli) og Elmar Geir Unnsteinsson (University College Dublin og Háskóli Íslands).
Viðburðurinn er á vegum rannsóknarverkefnisins Óheilindi og brotakenndur mannshugur (https://www.inframinds.ie/) sem styrkt er af Rannís og University College Dublin.
Þingið fer fram í stofu 202 í Odda. Þátttaka er frjáls en vinsamlegast skráið ykkur með tölvupósti (icelandreference2022@gmail.com). Smellið hér fyrir nánari upplýsingar og dagskrá.
Elmar Geir Unnsteinsson.
![Málþing um tilvísun](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/4d442.jpg?itok=MfR39OUR)