Þjóðfræði handan þess mannlega
![Þjóðfræði handan þess mannlega - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_byggingar_160804_11.jpg?itok=OJWBhpIF)
Oddi
Stofa 202
Fyrirlesari er Tok Thompson, prófessor í þjóðfræði og mannfræði við University of Southern California.
Getur api gert tilkall til ljósmyndar af sér? Geta gervimenni átt einhvern þegnrétt? Spurningar á borð við þessar tilheyra ekki lengur bara vísindaskáldskap.
Í fyrirlestrinum verða færð rök fyrir því að þjóðfræðin sé í lykilstöðu til að takast á við spurningar af þessum toga, en um leið þurfi að útvíkka sjóndeildarhring fagsins þannig að það taki líka til ómennskra gerenda. Í pósthúmanisma fléttast saman tveir meginþræðir: annar þeirra skoðar gráa svæðið milli mennskra og ómennskra dýra, hinn tækni, gervigreind og sæborgir og stöðu þeirra í menningu og samfélagi manna.
Þjóðfræði handan þess mannlega tekur þessa þræði saman og rannsakar breyttan skilning á mennskunni og stöðu mennskra dýra í gegnum tjáningu og athafnir daglegs lífs.
Tok Thompson, prófessor í þjóðfræði og mannfræði við University of Southern California
![Þjóðfræði handan þess mannlega](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/p24d3.jpg?itok=7RayAdi9)