Skip to main content

Hvernig aðstæður skipta máli í baráttu gegn spillingu

Hvernig aðstæður skipta máli í baráttu gegn spillingu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. apríl 2022 12:00 til 13:00
Hvar 

Oddi

Stofa 101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Dæmið um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Úkraínu.

Framsögumaður er prófessor Robert Klitgaard, Claremont Graduate University.

Alþjóðastofnanir eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn nálgast iðulega viðfangsefni eins og eitt líkan hæfi öllum aðstæðum. Það getur virkað til að bregðast við þjóðhagslegum áföllum. Það dugar ekki til að glíma við spillingu eða önnur málefni þar sem staðbundin þekking og sköpun eru forsenda árangurs. Hvernig er hægt að gera þetta öðruvísi? Í þessu erindi er fjallað um nálgun sem reynd hefur verið á vettvangi og hún yfirfærð á hið magnþrungna dæmi um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Úkraínu. Við skoðum hversu vel þessi nálgun á við önnur lönd og stefnumótun á öðrum sviðum.

Robert Klitgaard hefur skrifað tólf bækur, þeirra á meðal The Culture and Development Manifesto (Oxford UP 2021) og Tropical Gangsters, sem var útnefnd ein af bókum aldarinnar af New York Times Books.

Fyrirlesturinn er á vegum Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála.

Prófessor Robert Klitgaard, Claremont Graduate University

Hvernig aðstæður skipta máli í baráttu gegn spillingu