Skip to main content

Alþjóðlegur Rómadagur

Alþjóðlegur Rómadagur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
8. apríl 2022 16:00 til 18:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

1. hæð

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Haldið verður upp á Alþjóðadag Rómafólks í fyrsta á Íslandi þann 8. apríl í Veröld – húsi Vigdísar.

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem menningu Rómafólks verður haldið á lofti með þátttöku Rómafólks, m.a. tónlistarmanna, rithöfunda og fræðimanna, með það að markmiði að sýna, segja frá og efla menningu eins stærsta minnihlutahóps Evrópu sem hefur orðið fyrir mismunun í aldaraðir.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

Dagskrá:

16:00          Sunnudagsmatur og fleiri sögur Rómafólks – umræður og upplestur (á íslensku)

Rætt verður um bókina Sunnudagsmatur og fleiri sögur Rómafólks, sem hefur að geyma smásögur eftir marga helstu rithöfunda úr hópi Rómafólks, og valdir kaflar lesnir. Umræðurnar fara fram á íslensku.

Fram koma: Ásdís Rósa Magnúsdóttir, ritstjóri og þýðandi bókarinnar, Ilona Ferková og Eva Danišová, rithöfundar af rómískum uppruna, Þóra Hjörleifsdóttir, rithöfundur og svikaskáld og Stefano Rosatti, kennari í ítölskum bókmenntum. Kynnir er Rebekka Þráinsdóttir.

17:00          Léttar veitingar

17:30          Rómatónlist og opnun ljósmyndasýningarinnar Invisible Power (á ensku)

Eftir stutta opnun á verðlaunasýningunni Invisible Power stígur hljómsveitin Bachtalé á stokk og leikur tónlist að hætti Rómafólks.

Fram koma: Jelena Silajdžić, stjórnandi samtakanna Slovo 21, Tatjana Latinovic, forseti Kvenréttindafélags Íslands, Josef Šenki, fiðluleikari og hljómsveitin Bachtalé. Kynnar verða Izabela Chalupníková og Sofiya Zahova.

Dagskráin er hluti af fjölþjóðlega verkefninu Gendal’ipen // Reflection sem tékknesku samtökin Slovo 21 standa fyrir í samstarfi við Vigdísarstofnun – Alþjóðlega miðstöð tungumála og menningar með stuðningi frá Menningaráætlun EES.

Viðburðurinn er hluti af viðburðadagatali Vigdísarstofnunar í tengslum við alþjóðlegan áratug frumbyggjamála 2022-2032 (IDIL 2022-2032).

facebook

Alþjóðlegur Rómadagur

Alþjóðlegur Rómadagur