Kynningarfundur Rotaract í Reykjavík
Setberg
Rotaract í Reykjavík stendur fyrir kynningarfundi í í Háskóla Íslands 24. mars kl. 12:00 til 13:00 í Setbergi, 3. hæð t.h.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands og félagi í Rotaryklúbbi Reykjavíkur, flytur ávarp og Hrefna Sigríður Briem, forseti Rotaryklúbbsins Reykjavík Miðborg, er fundarstjóri og kynnir Rotary og Rotaract.
Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Freyr Gunnarsson voru skiptinemar á vegum Rotary fyrir 2-3 árum, Silja í Frakklandi og Bjarni á Spáni. Þau og fleiri segja frá reynslu sinni af Rotary og Rotaract.
Rotaract-klúbbar höfða til ungs fólks frá 18 ára aldri og færa með sér ýmis tækifæri:
- Leiðtogahæfni og þjálfun í félagslegu starfi
- Tengslanet hér heima og um allan heim sem nýtist fólki í leik, námi og starfi
- Víðsýni og þekking vex meðal annars því áhugaverðu fólki og leiðandi í samfélaginu er gjarnan boðið til fundar að segja frá og ræða sín áhugamál og sérsvið.
- Þátttaka í félagsstarfi Rotaract hér heima og erlendis eflir fólk og veitir tækifæri til að láta gott af sér leiða
Pizzur í boði Rotary á fundinum!
Nánari upplýsingar um starfið á www.rotary.org og www.rotary.is
Rotaract í Reykjavík stendur fyrir kynningarfundi í í Háskóla Íslands 24. mars kl. 12:00 til 13:00 í Setbergi, 3. hæð t.h.