Skip to main content

Jannick Friis Christensen: Á mörkum bleikþvottar og hreinleika

Jannick Friis Christensen: Á mörkum bleikþvottar og hreinleika - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
4. mars 2022 15:00 til 16:00
Hvar 

Zoom

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Streymi: 

https://eu01web.zoom.us/j/64140764015?pwd=dnNTK0Nac0dVRWJlL1N4bTI2NzNPUT09

Í erindinu verður fjallað um gleðigöngur og hvernig fyrirtæki hafa í auknum mæli tengt nafn sitt við viðburði þeim tengdum og jafnframt veitt fjárhagslegan stuðning. Verður efnið skoðað út frá hugtökum á borð við bleikþvott, hreinleika, markaðsvæðingu og hinsegin gróðahyggju. Rannsóknarverkefnið byggir á viðtölum og þátttökuathugunum sem framkvæmdar voru þegar alþjóðlegir hinsegin dagar voru haldnir í Kaupmannahöfn 2021.

Jannick Friis Christensen er nýdoktor við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn (Copenhagen Business School). Hann er núna gestafræðimaður við Menntavísindasvið, Deild menntunar og margbreytileika. Rannsóknarsvið hans tengist hvers kyns margbreytileika innan fyrirtækja og skipulagsheilda en jafnframt sinnir hann rannsóknum sem tengjast kyngervi og kynverund.