Skip to main content

Barátta fyrir réttindum intersex fólks á Íslandi: Mannréttindi sem lögfræðileg úrræði

Barátta fyrir réttindum intersex fólks á Íslandi: Mannréttindi sem lögfræðileg úrræði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
23. febrúar 2022 12:00 til 13:00
Hvar 

Lögberg

101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fundur á vegum Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands og Lagadeildar 

Á fáeinum árum hefur réttarvernd intersex fólks á Íslandi þróast frá því að hópurinn naut engrar sértækrar lagaverndar yfir í að Ísland varð brautryðjandi í vernd líkamlegrar friðhelgi barna með ódæmigerð kyneinkenni. Hvað skýrir þessa þróun – ekki síst þar sem alþjóðleg lagaleg viðmið skortir?

Daniela Alaattinoğlu, nýdoktor við Lagadeild mun fjalla um hina öru þróun á Íslandi og gera grein fyrir fimm þáttum sem eru afgerandi í þróuninni: i)  þróun á alþjóðavísu hvað varðar stefnumörkun og löggjöf um réttindi intersex fólks; ii) þróun alþjóðlegra verklagsreglna á sviði lífsiðfræði; iii) opinberar frásagnir intersex einstaklinga af reynslu sinni; iv) upplýst notkun málsvara mannréttinda intersex fólks á úrræðum og orðræðu mannréttinda; v) samstarf borgara, stjórnmálafólks og heilbrigðisstarfsfólks.

Fundurinn fer fram á ensku. 

Barátta fyrir réttindum intersex fólks á Íslandi: Mannréttindi sem lögfræðileg úrræði

Barátta fyrir réttindum intersex fólks á Íslandi: Mannréttindi sem lögfræðileg úrræði