Rektorapanell - Framtíðarsýn háskólanna í jafnréttismálum

Hvenær
14. febrúar 2022 13:00 til 14:00
Hvar
Viðburðinum verður streymt í gegnum Facebook síðu Jafnréttisdaga
Nánar
Aðgangur ókeypis
Rektorar háskólanna á Íslandi ræða jafnréttismál í víðum skilningi, helstu áherslur innan einstakra skóla og að hverju þurfi að huga í framtíðinni.
Fundi stýrir Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Stundarinnar.
Hægt verður að senda inn spurningar til fundarstjóra meðan á viðburði stendur.
Viðburðurinn er á vegum Háskóla Íslands, Háskólans á Bifröst, Listaháskóla Íslands, Háskólans á Hólum, Háskólans á Akureyri, Háskólans í Reykjavík og Landbúnaðarháskóla Íslands.
Hægt er að panta táknmálstúlkun á viðburði Jafnréttisdaga í HÍ með tölvupósti á msteph@hi.is.
Jafnréttisdagar 2022
