Netfyrirlestur um hinsegin málefni og rannsóknir: Dr. Ying-Chao Kao

Zoom
Hinseginfræði út frá sjónarhorni nýlenduhyggju: Áhrif hins samkynhneigða viðmiðs á réttindabaráttu hinsegin fólks í Tævan.
Tengill á Zoom:
https://eu01web.zoom.us/j/63786516696?pwd=VWwvZERQK1Z0UnBpd2FkdmovUklTZz09
Meeting ID: 637 8651 6696
Passcode: 915464
Í þessum fyrirlestri verður gerð grein fyrir því hvernig afbyggja megi nýlenduhyggju innan hinseginfræða og draga fram fleiri sjónarhorn þegar kemur að réttindabaráttu hinsegin fólks í Tævan. Í þessu sambandi verður gagnrýni Duggan á hinu samkynhneigða viðmiði skoðuð og hvernig bandarískir hinsegin fræðimenn nýttu sér það sjónarmið til að gagnrýna réttindabaráttu samkynhneigðra í Tævan og körfu þeirra um rétt til hjónabands. Að lokum verður rætt hvernig hægt er að nýta þess háttar gagnrýni á ríkjandi viðmið innan hinseginfræða til að skilja betur fræðslu til handa hinsegin innfæddum Tævanbúum.
Dr. Ying-Chao Kao, PhD, er lektor í félagsfræð við Virginia Commonwealth University. Hann lauk doktorspróf í félagsfræði frá Rutgers University. Hann hefur einkum sinnt rannsóknum á sviði kynverundar, karlmennsku, hnattvæðingu trúarbragða og ójafnrétti.
Opið öllum.
Dr. Ying-Chao Kao, Lektor í félagsfræði við Virgina Commonwealth University.Þriðji netfyrirlesturinn af fimm um hinsegin málefni og rannsóknir í hnattrænum heimi sem Menntavísindasvið býður upp á í vor.
