Skip to main content
23. ágúst 2021

Leggja grunn að öflugari vísindaráðgjöf um loftslagsmál

Leggja grunn að öflugari vísindaráðgjöf um loftslagsmál - á vefsíðu Háskóla Íslands

Þekking í þágu loftslagsmála er ný skýrsla sem Loftslagsráð og Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands hafa tekið saman um stöðu vísindaráðgjafar í loftslagsmálum.

Markmið skýrslunnar var að gefa yfirsýn og leggja grunn að sókn í átt að þverfræðilegri og öflugri vísindaráðgjöf um loftslagsmál á Íslandi sem skili skýrri stefnu og ákvörðunum í loftslagsmálum byggðri á traustri þekkingu. Greiningin byggist á samtali við fjölbreyttan hóp aðila sem koma að vísindaráðgjöf í loftslagsmálum frá ýmsum sjónarhornum. Með loftslagstengdri vísindaráðgjöf er átt við alla beitingu vísindalegrar þekkingar og mælinga við ákvarðanatöku stjórnvalda, hvort sem hún er formleg eða óformleg. 

Niðurstöður skýrslunnar sýna að skerpa þarf á hlutverkum margra aðila. Þeir sem rætt var við hafa almennt mikinn áhuga á að taka þátt í vísindaráðgjöf á þessu sviði og axla meiri ábyrgð. Mikið vantar upp á að skýr farvegur sé til staðar fyrir gagnkvæm samskipti stofnana, þekkingarfyrirtækja og stjórnvalda um rannsóknir og greiningar. Einnig er kallað eftir auknu fjármagni og eflingu mannauðs til að hægt sé að sinna öflugri vísindaráðgjöf í loftslagsmálum. 

Lesa má skýrsluna á vef Loftslagsráðs.
 

""