Á leið til náms við Minnesota-háskóla

Tveir nemendur við Háskóla Íslands, Sigurlaug Birna Guðmundsdóttir, BS-nemi í jarðfræði, og Breki Ingibjargarson, BS-nemi í tölvunarfræði, hlutu á dögunum veglegan styrk frá styrktarsjóði Val Bjornson Icelandic Exchange Scholarship Fund til þess að stunda nám á vormisseri við Minnesota-háskóla í Bandaríkjunum.
Samstarf Háskóla Íslands og Minnesota-háskóla spannar hátt á fjórða áratug og hafa skólarnir átt víðtækt samstarf, m.a. um stúdenta-, kennara- og starfsmannaskipti ásamt öflugu rannsóknasamstarfi.
Sjóðurinn var stofnaður í minningu Valdimars „Val“ Bjornsons, fyrrverandi fjármálaráðherra Minnesota (1906–1987). Hann var af íslensku bergi brotinn, einstakur ættjarðarvinur og var ákaflega annt um íslenska námsmenn í Minnesota. Sjóðurinn hefur notið mikils stuðnings vesturíslenska samfélagsins í Minnesota en í fararbroddi þess hafa verið Örn Arnar, ræðismaður Íslands, og Hekluklúbburinn, Íslendingafélag sem starfað hefur óslitið frá árinu 1925. Fyrrverandi formaður Hekluklúbbsins, Erin Mae Johnson, stundar nú BA-nám í íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands.
Hér á landi er starfandi Hollvinafélag fyrrverandi nemenda Minnesota-háskóla á Íslandi. Jónína Ólafsdóttir Kárdal, náms- og starfsráðgjafi við Háskóla Íslands, er formaður félagsins en hún er ein þeirra sem notið hafa styrks úr styrktarsjóði Val Bjornsons.
Umsóknarfrestur fyrir nám og styrk til dvalar við Minnesota-háskóla skólaárið 2020-2021 er 3. febrúar 2020. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Skrifstofu alþjóðasamskipta við Háskóla Íslands.

