Kennarar deildarinnar stunda rannsóknir á fjölbreyttum sviðum og í nánu samstarfi við vettvang. Áhersla er lögð á rannsóknir á íslensku samfélagi með alþjóðlegri skírskotun.
Ólík rannsóknarsvið kennara endurspegla fjölbreytileika greinarinnar en meðal þeirra má nefna:
- Barnavernd
- Fagþróun í félagsráðgjöf
- Fjölskyldu- og félagsmálastefna
- Fæðingarorlof og umönnun barna
- Málefni barna og fjölskyldna, m.a. fjölskyldutengsl, skilnaðir, fátækt barna
- Hagir aldraðra og öldrunarmál
- Handleiðsla
- Ofbeldi
- Notendasamráð
- Langtímaatvinnuleysi og endurhæfing
- Sjálfboðaliðar og frjáls félagasamtök
- Stjórnun og skipulag félags- og heilbrigðisþjónustu
Rannsóknastofnanir
MARK - Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna
Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd (RBF)
Vaxandi - miðstöð um samfélagslega nýsköpun við Háskóla Íslands