Skip to main content
20. september 2016

Opinber vörn meistararitgerðar í lögfræði

""

Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, meistaranemi í lögfræði, ver ritgerð sína föstudaginn 23. september kl. 15.00 í Lögbergi 101. Heiti ritgerðarinnar er Magn er ekki sama og gæði. Áhrif Sameinuðu þjóðanna á inntak mannréttindaákvæða stjórnarskráa eftir stríðsátök og mannréttindavernd í viðkomandi ríkjum.

Leiðbeinandi Auðar Tinnu var Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor og prófdómari er Þórdís Ingadóttir, dósent við Lagadeild HR.
 
Allir velkomnir. Léttar veitingar að lokinni vörn.

Auður Tinna Aðalbjarnardóttir
Auður Tinna Aðalbjarnardóttir