Er Mannréttindadómstóll Evrópu að draga úr valdi sínu?

„Er Mannréttindadómstóll Evrópu að draga úr valdi sínu? Þróun nálægðarreglu og svigrúms til mats í dómaframkvæmd MDE“ er yfirskrift opins fundar sem fer fram föstudaginn 16. september 2016 kl. 12-13.15 í Lögbergi, stofu 101.
Framsögumenn verða þau Róbert R. Spanó, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu. og Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við Lagadeild HÍ.
Í erindi sínu mun Róbert varpa ljósi á þróun nálægðarreglunnar (e. the principle of subsidiarity) í nýlegri dómaframkvæmd MDE og ólíkar birtingarmyndir reglunnar út frá sjónarhóli starfandi dómara við dómstóllinn. Spurt verður hvort það viðhorf sé á undanhaldi að MDE skuli vera í framvarðarhlutverki við vernd mannréttinda og því sé nú frekar lögð á það áhersla að dómstólnum beri að þróa dómaframkvæmd sína í ríkari mæli í þá átt að virkja frumábyrgð aðildarríkjanna við að tryggja mannréttindi.
Oddný mun greina frá rannsóknum sínum á kenningunni um svigrúm til mats en áhersla verður lögð á að skýra tvær megin birtingarmyndir hennar og hvernig nýleg dómaframkvæmd birtir nokkuð breytta sýn dómstólsins á hlutverk sitt, sjá nánar á: http://journals.cambridge.org/action/displayAbstract?fromPage=online&aid...
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
