1. september 2016
Álfrún Perla hlýtur Chevening-styrkinn

Álfrún Perla Baldursdóttir útskrifaðist úr Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands í júní síðastliðnum en hún fékk afhendan hinn virta Chevening-styrk til að leggja stund á meistaranám í átakafræðum (e. conflict studies) við London School of Economics and Political Science.
Styrkurinn kemur frá bresku ríkisstjórninni sem liður í því að styrkja og byggja upp alþjóðlega leiðtoga. Paul Begley, Chargé d'Affaires, staðgengill sendiherra Bretlands á Íslandi, veitti Álfrúnu námsstyrkinn við athöfn hjá breska sendiráðinu.
Stjórnmálafræðideild óskar henni innilega til hamingju með styrkinn og velfarnaðar í áframhaldandi námi!

