Skip to main content
31. ágúst 2016

Ræðir um umhverfis- og auðlindarétt á Nýja-Sjálandi

""

Barry Barton lagaprófessor fjallar um helstu svið umhverfis- og auðlindaréttar á Nýja-Sjálandi í ljósi aðstæðna þar og ber saman við stöðuna á Íslandi í erindi miðvikudaginn 14. september nk. kl. 11.30 í stofu 101 á Háskólatorgi.

Barton er prófessor í lögum við Wikato-háskólann á Nýja-Sjálandi og framkvæmdastjóri Miðstöðvar um umhverfis-, auðlinda- og orkulöggjöf og hefur að auki tekið virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi á framangreindum réttarsviðum.

Fundarstjóri er Helgi Áss Grétarsson, dósent við Lagadeild HÍ.

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Rannsóknastofa í umhverfis- og auðlindarétti við Lagastofnun Háskóla Íslands stendur að fyrirlestrinum.

Barry Barton lagaprófessor
Barry Barton lagaprófessor