Skip to main content
5. júlí 2016

Brautskráning og afburðanemar Lagadeildar verðlaunaðir

Vorbrautskráning Háskóla Íslands fór fram við hátíðlega athöfn laugardaginn 25. júní sl. Frá Lagadeild brautskráðust 48 nemendur með meistarapróf í lögfræði (mag.jur.) og 73 nemendur luku BA-prófi í lögfræði. Þá voru brautskráðir tveir nemendur með LL.M. meistarapróf í auðlindarétti og alþjóðlegum umhverfisrétti og einn nemandi brautskráðist frá deildinni með meistarapróf í skattarétti og reikningsskilum, sem er þverfaglegt nám í samvinnu við Viðskiptafræðideild.

Að venju bauð Lagadeild til móttöku fyrir nemendur brautskráða á námsárinu 2015-2016 og var hún haldin á Háskólatorgi.  Veittar voru viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur.

Hollvinafélag Lagadeildar, Logos og bókaútgáfan Codex verðlauna afburðanemendur

Eyvindur G. Gunnarsson, forseti Lagadeildar, ávarpaði boðsgesti en að því búnu veitti LOGOS lögmannsþjónusta Helgu Guðmundsdóttur 250 þús. kr. viðurkenningu fyrir hæstu einkunn á meistaraprófi námsárið 2015-2016 og afhenti Helga Melkorka Óttarsdóttir hrl. henni viðurkenninguna.

Viðurkenningu frá Hollvinafélagi Lagadeildar fyrir hæstu einkunn á BA-prófi námsárið 2015-2016 hlaut Ásthildur Valtýsdóttir. Verðlaunin námu 150 þús. kr. Fyrir hönd Hollvinafélagsins afhenti verðlaunin Ragnar Tómas Árnason hrl., formaður félagsins.

Bókaútgáfan Codex veitti að venju viðurkenningu þeim nýnema sem stóðst öll námskeið fyrsta árs í fyrstu tilraun með hæstu meðaleinkunn. Að þessu sinni var Ivana Anna Nikolic með hæstu einkunn og fékk hún að gjöf allar námsbækur 2. og 3. árs í lögfræði sem gefnar eru út af Codex auk nokkurra valinna rita. Hildur Hjörvar, stjórnarmaður í bókaútgáfunni Codex, afhenti viðurkenninguna.

Viðurkenning fyrir bestu meistararitgerðina

Lögmenn Lækjargötu ehf. veittu viðurkenningu að upphæð 250 þús. kr. til þess nemanda sem skilaði bestu lokaritgerð til meistaraprófs í lögfræði á undangengnu almanaksári. Þær ritgerðir koma til greina sem hafa fengið einkunnina 9,0 eða hærri. Þriggja manna dómnefnd sem var skipuð tveimur fulltrúum Lagadeildar og einum fulltrúa frá Lögmönnum Lækjargötu ehf. mat þær 15 ritgerðir sem komu til greina.

Dómnefndin valdi meistararitgerð Þorvaldar Haukssonar, sem ber heitið „Forkaupsréttur". Leiðbeinandi hans var Helgi Áss Grétarsson dósent.  Eva Halldórsdóttir hdl. afhenti Þorvaldi viðurkenninguna.  Matsnefndina skipuðu að þessu sinni Sigurður Kári Kristjánsson hdl., f.h. Lögmanna Lækjargötu, og Eyvindur G. Gunnarsson og Arnaldur Hjartarson f.h. Lagadeildar HÍ.

Viðurkenning vegna hæstu einkunnar á BA-prófi

Þeir Páll Hreinsson, dómari við EFTA-dómstólinn, og Róbert R. Spanó, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, taka höndum saman og veita viðurkenningu til þess nemanda sem lýkur BA-prófi með hæstu einkunn. Verðlaunin felast í því að verðlaunaþega er boðið að heimsækja dómstólana báða og kynna sér starfsemi þeirra og fær hann greiddar ferðir og uppihald. Eins og áður sagði var Ásthildur Valtýsdóttir með hæstu einkunn á BA-prófi á námsárinu og hlaut hún framangreind verðlaun.

Eyvindur, Helga Melkorka, Helga Guðmundsdóttir, Ivana Anna, Hildur Hjörvar, Ragnar Tómas, Ásthildur, Eva og Þorvaldur
Helga Melkorka Óttarsdóttir hrl. og Helga Guðmundsdóttir
Ragnar Tómas Árnason hrl. og Ásthildur Valtýsdóttir
Hildur Hjörvar og Ivana Anna Nikolic
Eva Halldórsdóttir hdl. og Þorvaldur Hauksson
Eyvindur, Helga Melkorka, Helga Guðmundsdóttir, Ivana Anna, Hildur Hjörvar, Ragnar Tómas, Ásthildur, Eva og Þorvaldur
Helga Melkorka Óttarsdóttir hrl. og Helga Guðmundsdóttir
Ragnar Tómas Árnason hrl. og Ásthildur Valtýsdóttir
Hildur Hjörvar og Ivana Anna Nikolic
Eva Halldórsdóttir hdl. og Þorvaldur Hauksson