106 brautskrást frá Stjórnmálafræðideild

2108 kandídatar brautskráðust frá Háskóla Íslands um nýliðna helgi. Að þessu sinni brautskráðust 106 kandídatar frá Stjórnmálafræðideild og er þetta stærsti hópur sem brautskráðst hefur frá deildinni. Alls luku 24 kandídatar meistaranámi, 62 diplómanámi og 20 BA-námi í stjórnmálafræði.
Af þeim sem brautskráðust úr meistaranámi voru fjórir kandídatar með MA-próf í alþjóðasamskiptum, fimm með MA-próf í blaða- og fréttamennsku, einn með MA-próf í Evrópufræði, þrír með MA-próf í í kynjafræði og ellefu með MPA-próf í opinberri stjórnsýslu. Kandídatar með viðbótardiplóma komu flestir úr námi í opinberri stjórnsýslu eða 43 talsins. Auk þeirra brautskráðust þrír með viðbótardiplóma í alþjóðasamskiptum, einn í Evrópufræði, tveir í fjölmiðla- og boðskiptafræði, tólf í hagnýtri jafnréttisfræði og einn í smáríkjafræðum.
Yfirlit yfir lokaritgerðir meistara- og BA-nema er að finna á heimasíðu Stjórnmálafræðideildar.
Stjórnmálafræðideild óskar kandídötum innilega til hamingju með áfangann.
