Skip to main content
28. apríl 2016

Kvennaskólinn heimsækir Félagsvísindasvið

""

Um 35 nemendur á þriðja ári frá Kvennaskólanum í Reykjavík heimsóttu Félagsvísindasvið Háskóla Íslands fimmtudaginn 28. apríl. Alls kynntu sex deildir sviðsins nám við deildir sínar og nemendur þáðu veitingar að kynningu lokinni.

Í áfanganum Náms- og starfsval í Kvennaskólanum er unnið að því að nemendur séu vel undirbúnir til að marka sér framtíð og bera ábyrgð á þeirri leið sem þeir kjósa eftir að Kvennaskólanum lýkur. Kenndar eru leiðir til að efla sjálfsþekkingu og að taka ákvarðanir á upplýstan hátt. Áhersla er lögð á að nemendur séu meðvitaðir um þá óþrjótandi möguleika sem í boði eru í háskólanámi hérlendis og erlendis og þekki leiðir til að afla upplýsinga á þessu sviði.

Kennari í áfanganum er Sigríður María Tómasdóttir.

Sjá myndir á flickr hér.

""
""