Styrkveiting úr vísindasjóði Öldrunarfræðafélagsins

Stjórn Öldrunarfræðafélags Íslands (ÖFFÍ) veitti fimmtudaginn 17. mars sl. tvo styrki til rannsóknarverkefna á sviði öldrunarmála sem unnin verða á næstunni.
Kristbjörg Sóley Hauksdóttir, meistaranemi í öldrunarfræðum við Félagsráðgjafardeildar, hlaut annan styrkinn úr vísindasjóði að þessu sinni. Verkefnið hennar ber heitið „Eiga aldraðir áhyggjulaust ævikvöld? Rannsókn á viðhorfum, þekkingu og reynslu starfsfólks af ofbeldi gegn öldruðum inn á hjúkrunarheimilum á höfuðborgarsvæðinu“. Leiðbeinandi Kristbjargar Sóleyjar er Sigurveig H. Sigurðardóttir, dósent og deildarforseti Félagsráðgjafardeildar.
Vísindasjóður Öldrunarfræðafélags Íslands var stofnaður 1984 til styrktar vísinda- og rannsóknarstarfsemi í öldrunarfræðum.
Félagsráðgjafardeild óskar Kristbjörgu Sóleyju innilega til hamingju með styrkinn.

