Skip to main content
6. apríl 2016

Samstarfssamningur undirritaður

""

Föstudaginn 1. apríl sl. var undirritaður þriggja ára samstarfssamningur Félagsvísindasviðs og Heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Um er að ræða samstarf um diplómanám í starfsendurhæfingu sem skipulagt verður sameiginlega af Félagsráðgjafardeild HÍ og Framhaldsnámsdeild HA. Markmiðið með samstarfinu er að stuðla að vandaðri menntun og rannsóknum í starfsendurhæfingu. 

Diplómanám í starfsendurhæfingu telur 60 einingar á meistarastigi. Námið er þverfaglegt og verður áhersla lögð á að nýta bæði fjarnám og staðbundið lotunám. 

Frá undirrituninni 1. apríl. Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs, fyrir hönd HÍ og Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs HA, fyrir hönd HA ásamt Sigurveigu Sigurðardóttur, deildarforseta Félagsráðgjafardeildar og Steinunni Hrafnsdóttur, varadeildarforseta Félagsráðgjafardeildar.