Skip to main content
29. mars 2016

Safnar sögum úr gosinu í Eyjafjallajökli

„Eyjafjallajökull, bæði eldstöðin og jökulinn, hafa alltaf haft sérstaka þýðingu fyrir mig. Forfeður mínir bjuggu undir fjallinu og ég ólst upp á Heimaey með það fyrir augunum og sé það reglulega núna frá sumarhúsinu mínu á Suðurlandi,“ segir Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands. Hann vinnur að rannsóknarverkefninu Volcanologues þar sem markmiðið er að safna reynslusögum af eldgosinu í Eyjafjallajökli árið 2010 frá fólki víða að úr heiminum.

Eins og flestum er kunnugt hafði öskugosið í eldstöðinni umtalsverð áhrif á bæði líf Íslendinga og annarra þjóða. Um 20 þjóðir ákváðu að stöðva flugumferð um lofthelgi sína vegna eldfjallaösku frá Eyjafjallajökli í háloftunum og er áætlað að gosið hafi haft áhrif á ferðaplön hátt í tíu milljóna manna þá daga sem það stóð yfir. Eldgosið og ekki síður nafn eldstöðvarinnar var á vörum fólks víða um heim í kjölfarið og um leið beindist kastljós fjölmiðla heimsins að Íslandi.  

„Ég, eins og margir aðrir, fann fyrir áhrifum gossins,“ segir Gísli. „Ég bæði fylgdist með fregnum af eiturgufum í andrúmsloftinu í fréttunum hér heima og öskulaginu sem settist á heimili mitt í Reykjavík. Ég þurfti einnig að hætta við ferð á stóra ráðstefnu í Póllandi vegna gossins og þá varð ég jafnframt strandaglópur í Noregi um það leyti sem síðustu gosstrókarnir úr eldgosinu þeyttust upp í háloftin,“ segir Gísli.

Hann bætir við að mánuðina á eftir hafi hann hitt fjölmarga sem lýst hafi svipaðri reynslu af gosinu og jafnvel dramatískari. „Í framhaldinu kviknaði sú hugmynd að það væri áhugavert að safna sögum úr gosinu.“

Verkefnið Volcanologues er vistað hjá Háskóla Íslands og markmið þess að skrá þau margvíslegu áhrif sem gosið hafði á fólk í ólíkum heimshlutum. „Það geta allir tekið þátt í rannsókninni og sent mér sínar sögur. Saman munu þær veita einstæða sýn inn í atburð sem á sér engan líka og eftirköst hans,“ segir Gísli.

Gísli bendir þeim, sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu, á að senda stutta frásögn (um 500-1000 orð) og jafnvel myndir, teikningar eða önnur skjöl sem tengjast reynslu fólks af eldgosinu, á netfangið volcanologues2010@gmail.com. „Textanum skal fylgja titill ásamt nafni og netfangi höfundar auk yfirlýsingar þar sem mér er veitt heimild til þess að birta söguna og gögnin á heimasíðu verkefnisins og í prentuðu úrvali af frásögnunum,“ segir Gísli.

Hægt er að lesa meira um verkefnið á heimasíðunni Glacierhub og fylgjast með því á Facebook-síðu Volcanologues.

Gísli Pálsson og myndir úr eldgosinu í Eyjafjallajökli
Gísli Pálsson og myndir úr eldgosinu í Eyjafjallajökli