Gísli Pálsson hlýtur styrk frá HERA

HERA, samstarfsvettvangur á sviði hugvísinda í Evrópu, veitti nýlega styrki úr kalli sínu, Uses of the Past. Átján verkefni hlutu styrki, en yfir 500 umsóknir bárust.
Á meðal verkefna sem hlaut brautargengi er verkefnið CITIGEN – Identity, citizenship, and nationhood in the post-genome era. Verkefnið er rannsóknaverkefni til þriggja ára á sviði fornleifafræði, mannfræði, erfðafræði, sagnfræði og vísindasögu.
Heildarstyrkur til verkefnisins er tæpar 170 milljónir. Af þeirri upphæð eru rúmar 40 milljónir sem koma hingað til lands. Það er Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði, sem fer fyrir verkefninu hér á landi.
Verkefnið er samstarfsverkefni Gísla, Hannesar Schroeder frá Kaupmannahafnarháskóla, Daniel Bradley frá Trinity College Dublin og Mark Omrod frá University of York.

