Skip to main content
15. mars 2016

Ný bók: Challenges to European Welfare Systems

""

Bók um verkefni og viðbrögð evrópsku velferðarkerfanna í kjölfar kreppunnar árið 2008 var nýlega gefin út af Springer forlaginu.  Í bókinni fjalla fræðimenn frá  30 Evrópuríkjum um hvernig kreppan hafði áhrif á velferðarkerfin og hver staða þeirra er í kjölfarið.

Í bókinni er kafli um íslenska velferðarkerfið og kreppuna sem hér varð eftir Guðnýju Björk Eydal, prófessor í félagsráðgjöf, og Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði.  

Bókinni er ritstýrt af Klaus Schubert prófessor og félögum frá Münster Universität.

 

""
""