Alþjóðlegi mannfræðidagurinn haldinn hátíðlegur

Þann 18. febrúar sl. var alþjóðlegi mannfræðidagurinn haldinn hátíðlega í fyrsta sinn og hélt nemandafélag mannfræðinnar, Homo, upp á daginn í samstarfi við námsbrautina.
Til að fagna deginum var skipulögð málstofa þar sem Helga Björnsdóttir mannfræðingur stjórnaði umræðum. Fyrst á stokk steig Helga Ögmundardóttir og ræddi sínar vangaveltur um stöðu mannfræðinnar og í kjölfarið fylgdi Kristín Loftsdóttir og deildi skemmtilegri sögu af vettvangi.
Því næst fluttu tveir nýútskrifaðir meistaranemendur erindi um lokaverkefni sín. Fyrra erindi flutti Vala Hrönn Isabel Pétursdóttir um viðhorf og upplifanir kynferðisbrotamanna og síðara var flutt af Þorsteini Valdimarssyni sem fjallaði um íslensk borgarasamtök og mannúðarsamtök þar sem hann skoðaði ákvörðunarferlið sem á sér stað í úthlutun á styrkjum. Að því loknu var boðið upp á köku og kaffi.
Síðar um kvöldið fjölmenntu svo mannfræðinemar á Ölsmiðjuna þar sem fagnað var með mannfræði pub-quiz og pítsuveislu. Þá mættu tveir kennarar við mannfræðinámsbrautina, þau Jónína Einarsdóttir og Geir Gunnlaugsson, og tóku þátt við mikla gleði nemanda.
Þrátt fyrir kaldan febrúarmánuð léku veðurguðirnir við mannfræðinema og skein sólin glatt þennan dag. Þessi fyrsti mannfræðidagur gekk eins og í sögu og er stefnt að því að fagna deginum árlega héðan í frá.







