Styrktarsöfnun meistaranema lokið

Styrktarsöfnuninni „Upplifun fyrir alla“, sem meistaranemar við Viðskiptafræðideild hafa staðið fyrir síðastliðnar vikur, er formlega lokið. Af því tilefni birtu nemendur myndband á Facebook-síðu söfnunarinnar þar sem þeim fjöldamörgu einstaklingum og fyrirtækjum var þakkað fyrir þeirra framlag til söfnunarinnar.
Söfnunin var fyrir sumarbúðirnar í Reykjadal sem eru einu sumarbúðir landsins fyrir fötluð börn. Árlega dvelja þar um 300 börn á aldrinum 8-21 árs alls staðar að af landinu og eiga ævintýradaga í frábæru umhverfi.
Verkefnið vann meistaranemahópurinn undir leiðsögn Elmars Hallgríms Hallgrímssonar, lektors við Viðskiptafræðideild, og stóð söfnunin frá 9. til 23. febrúar. Hægt var að leggja henni lið á margvíslega vegu í gegnum styrktarsíma eða viðburði.
Lokaviðburður söfnunarinnar fer svo fram í marsmánuði þegar nemendur munu formlega afhenda aðstandendum sumarbúðanna í Reykjadal það fjármagn sem safnaðist.
Sjá má þakkarmyndband söfnunarinnar á Facebook-síðu hennar.

