Hlýtur styrk fyrir nýsköpun í kennslu

Nýverið hlaut Gunnar Óskarsson, lektor við Viðskiptafræðideild, styrk frá Tækjakaupasjóði en stjórn hans úthlutaði tækjakaupafé fyrir árið 2016. Margar umsóknir bárust sjóðnum en samkvæmt sjóðnum skiptir umfjöllun og forgangsröðun deilda/fræðasviða höfuðmáli.
Hlýtur Gunnar styrk til kaupa á hugbúnaðnum MyManagmentLab og LearningCatalytics. Um er að ræða hugbúnað sem styður við námsárangur, opnar möguleika á fjölbreyttara námsmati og býður upp á fjölbreytt stuðningsefni. Meðal þess sem hugbúnaðurinn býður upp á eru hermiverkefni (e. simulation) þar sem nemendur vinna að lausn á viðfangsefnum í nokkrum áföngum og þurfa nemendur að taka ákvarðanir á grundvelli nýrra upplýsinga í gegnum verkefnið. Nemendur fá síðan skýrslu í lok verkefnis þar sem fjallað er um niðurstöðuna, hvar þau hefðu getað tekið aðrar ákvarðanir og hvers vegna þær hefðu verið betri og margt fleira. Með þessum hætti fá þau þjálfun í að beita því sem þau læra í námskeiðinu í raunhæfu verkefni.
Hugbúnaðurinn opnar jafnframt möguleika á ýmsum gagnvirkum kennsluaðferðum, svo sem að setja fyrir spurningar í tíma og niðurstöður birtast í rauntíma á skjá. Í hugbúnaðinum er enn fremur teikning af kennslustofunni og sætaskipan, en það skapar möguleika á að fylgja eftir svörum nemenda og kalla fram umræður um þau. Í framhaldi er hægt að nýta niðurstöður til að skapa umræður í kennslustund. Að sögn Gunnars hefur hann þegar nýtt hugbúnaðinn í tveimur námskeiðum með ágætum árangri.

