Skip to main content
19. febrúar 2016

Rúmlega 400 kandídatar brautskráðir frá HÍ á morgun

""

Um 410 kandídatar verða brautskráðir úr grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands við hátíðlega athöfn í Háskólabíói á morgun, laugardaginn 20. febrúar, kl. 13. Þetta er fyrsta brautskráning nýs rektors, Jóns Atla Benediktssonar.

Nemendur af öllum fimm fræðasviðunum skólans, Félagsvísindasviði, Heilbrigðisvísindasviði, Hugvísindasviði, Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði, fá afhent prófskírteini á hátíðinni. Samanlagður fjöldi brautskráðra er 411 með 411 próf, 211 sem hafa lokið grunnnámi og 200 sem hafa lokið framhaldsnámi. Í hópi brautskráðra að þessu sinni er fyrsti nemandinn sem útskrifast með MS-gráðu í jarðvísindum.

Við athöfnina munu Aron Ólafsson, formaður Stúdentaráðs, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, ávarpa kandídata en þetta er fyrsta brautskráning þess síðarnefnda í embætti rektors.

Kandídötum er ætlað afmarkað svæði í Háskólabíói og eru þeir beðnir um að mæta ekki síðar en kl. 12.00. Hver kandídat verður með númerað sæti sem kemur fram á nafnalista sem afhentur verður með dagskrá við innganginn og er sætaskipan í samræmi við afhendingu prófskírteina. Umsjónarfólk verður á staðnum til að leiðbeina um sætaskipan.

Frá brautskráningu Háskóla Íslands 21. febrúar 2015.
Frá brautskráningu Háskóla Íslands 21. febrúar 2015.