17. febrúar 2016
Flensan kostar samfélagið á annan milljarð

Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, var gestur Síðdegisútvarpsins á Rás 2 í vikunni og ræddi um efnahagslegar hliðar flensunnar. Hún sagði m.a. að bólusetningar og óhjákvæmilegar innlagnir kostuðu heilbrigðiskerfið um hundrað milljónir en framleiðslutap vegna flensunnar væri umtalsvert meira.
Miðað við að þrjátíu þúsund manns veiktust mætti áætla að framleiðslutapið næmi yfir milljarði króna, jafnvel einum og hálfum milljarði. Kostnaður í heilbrigðiskerfinu væri því lítill í samanburði við samfélagið allt. Ef fólk væri ekki bólusett yrði framleiðslutapið hins vegar enn meira. Þá mætti áætla að 75 þúsund veiktust og að framleiðslutapið væri tvöfalt meira, eða yfir þrír milljarðar króna.

