4. febrúar 2016
Hvernig á að efla eftirlit með lögreglu?

Föstudaginn 12. febrúar nk. kl. 12-14 efnir innanríkisráðuneytið til málþings um eftirlit með lögreglu í samstarfi við Lagadeild Háskóla Íslands og Lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Málþingið verður haldið í stofu V-101 á 1. hæð í HR, Menntavegi 1.
Erindi flytja:
Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari - Kynning á skýrslu nefndar innanríkisráðherra um meðferð kvartana og kærumála á hendur lögreglu.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari - Eftirlit með lögreglu - reynsla og framtíðarsýn.
Snorri Magnússon formaður Landssambands lögreglumanna - Eftirlit með lögreglu - reynsla og framtíðarsýn.
Trausti Fannar Valsson dósent við Lagadeild Háskóla Íslands - Skipulag eftirlits með lögreglu.

