Baldur og Þorgerður endurkjörin

Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, var endurkjörinn deildarforseti á fundi Stjórnmálafræðideildar 14. janúar sl. Á sama fundi var Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði, endurkjörin varadeildarforseti. Baldur og Þorgerður hafa sinnt forsetastörfum frá árinu 2014 og munu nú starfa áfram til 1. júlí 2018.
Baldur lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá University of Essex árið 1999 og hefur starfað hjá Háskóla Íslands síðan 1995, fyrst sem stundakennari, sem lektor frá 2000 og dósent frá 2002. Baldur hlaut framgang í stöðu prófessors árið 2006.
Þorgerður lauk doktorsprófi í félagsfræði frá Gautaborgarháskóla árið 1997 og hefur starfað við Háskóla Íslands frá árinu 1999, fyrst sem stundakennari en síðar lektor og dósent. Hún hlaut framgang í stöðu prófessors árið 2009. Þorgerður gegndi starfi deildarforseta Stjórnmálafræðideildar á árunum 2010-2012.
Stjórnmálafræðideild hefur vaxið fiskur um hrygg síðustu árin. Stjórnmálafræði hefur verið kennd við Háskóla Íslands frá árinu 1970 en það var árið 2008 sem Stjórnmálafræðideild varð sjálfstæð deild innan Félagsvísindasviðs í kjölfar endurskipulagningar Háskóla Íslands. Til viðbótar við námsleiðir í alþjóðasamskiptum, Evrópufræði, kynjafræði, opinberri stjórnsýslu, smáríkjafræði og stjórnmálafræði, bættust nýlega við námsleiðir í blaða- og fréttamennsku, fjölmiðla- og boðskiptafræði og vestnorrænum fræðum. Haustið 2016 mun Stjórnmálafræðideild svo bjóða upp á nýtt meistaranám í samanburðarstjórnmálum.
Tilkoma nýrra námsleiða á framhaldsstigi hefur leitt til töluverðrar fjölgunar nemenda og eru nemendur deildarinnar nú um 650 talsins, þar af eru um 460 sem stunda framhaldsnám. Stærri brautskráningar fylgja fjölgun í nemendahópi en að meðaltali hafa 130 nemendur brautskrást árlega frá deildinni frá endurskipulagningu háskólans árið 2008. Kennarahópur deildarinnar hefur einnig stækkað og eflst með árunum en nú eru fastir kennarar 21 talsins og stundakennarar tæplega 30.

