Skip to main content
22. janúar 2016

Innsetningarathöfn Stefáns Hrafns Jónssonar

""

Innsetningarathöfn Stefáns Hrafns Jónssonar, prófessors í félagsfræði, fór fram þann 13. janúar sl. í Odda 101. Haldið er upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestri á Félagsvísindasviði.

Athöfnin hófst með stuttu yfirliti Daða Más Kristóferssonar, forseta Félagsvísindasviðs, yfir helstu störf Stefáns Hrafns en svo tók Stefán Hrafn við og hóf erindi um störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum.

„Að fá beiðni um að halda erindi um fyrri verk og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum var sérlega skemmtileg áskorun. Ég velti lengi fyrir mér hvernig best væri að standa að kynningunni þannig að hún væri skemmtileg og fróðleg fyrir vini bæði utan og innan Háskóla Íslands,“ segir Stefán.

„Ég ákvað á endanum að  notast við ævisöguformið þar sem ég fór mishratt yfir mikilvæga atburði og fólk í mínu lífinu en fjallaði einnig um mikilvægi tengslanets, trausts og akademískra gilda. Erindið er líklega það sjálfhverfasta sem ég mun halda á mínum akademíska ferli en vonandi var það skemmtilegt. Ég notaði m.a. tækifærið og fjallaði stuttlega um doktorsritgerðina um fjölda og fæðingar mexíkóskra kvenna í Bandaríkjunum. Auglýst erindi um þetta efni hefði líklega ekki dregið að fleiri en tvo áhorfendur í Odda,“ segir Stefán Hrafn.

Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á hinum nýja prófessor, störfum hans og áherslum, ekki síst til þess að auka tengsl og samstarf innan skólans.

Sjá myndir frá athöfninni á flickr

 

Innsetningarathöfn Stefáns Hrafns Jónssonar, prófessors í félagsfræði fór fram þann 13. janúar
Innsetningarathöfn Stefáns Hrafns Jónssonar, prófessors í félagsfræði fór fram þann 13. janúar