Rætt um viðbrögð við flóttamannastraumi til Evrópu

Stóraukinn straumur flóttafólks frá stríðshrjáðum svæðum, sérstaklega frá Sýrlandi, til Evrópu verður viðfangsefni þriðja fundar í fundaröð Háskóla Íslands, Fræði og fjölmenning, sem að þessu sinni er haldinn í samstarfi við íslenska utanríkisráðuneytið og fulltrúa frá alþjóðlegu frjálsu félagasamtökunum Norwegian Refugee Council (NRC). Fundurinn fer fram mánudaginn 11. janúar nk., kl. 12.00 til 13.30 í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands og er öllum opinn.
Hinn aukni straumur flóttafólks á síðustu misserum hefur blásið nýju lífi í umræður um fjölmenningarsamfélagið. Sýrlenskir ríkisborgarar á flótta nálgast 4,4 milljónir og hundruð þúsunda hafa sótt um hæli í Evrópu. Áhrifanna gætir um gjörvalla álfuna og eru norrænu ríkin, þar með talið Ísland, ekki undanskilin þeirri þróun.
NRC, sem staðsett er í Genf í Sviss, er sjálfstæð, alþjóðleg stofnun á sviði neyðar- og mannúðaraðstoðar og nýtur m.a. framlaga norskra, sænskra og breskra stjórnvalda auk Neyðarsjóðs ESB og stofnana Sameinuðu þjóðanna. NRC er einn helsti samstarfsaðili Sameinuðu þjóðanna um mönnun viðbragðsverkefna og starfar náið með Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, t.d. um rekstur og stjórnun flóttamannabúða. NRC fylgist einnig með málefnum fólks á vergangi. Algengt er að stjórnvöld og alþjóðastofnanir nýti sér greiningar stofnunarinnar til að taka ákvarðanir um málefni flóttamanna og á sviði neyðar- og mannúðaraðstoðar.
Á fundinum í Hátíðasal Háskóla Íslands á mánudag verður fjallað um bæði viðbrögð íslenskra stjórnvalda og NRC við þessari nýju stöðu í Evrópu. Þannig mun Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra greina frá viðbrögðum íslenskra stjórnvalda við óöldinni í Sýrlandi og áskorunum vegna aukins straums flóttamanna frá stríðshrjáðum svæðum til Evrópu og Auðbjörg Halldórsdóttir, forsvarsmaður Íslensku friðargæslunnar, fjallar um framlag Íslands til neyðar- og mannúðarmála er tengjast ástandinu í Sýrlandi.
Enn fremur mun Martin Hartberg, sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda hjá NRC, fjalla um stöðu mála í Sýrlandi, áhrifum átakanna í Evrópu og starfsemi NRC í tengslum við þau og Arvinn E. Gadgil, yfirmaður samstarfs- og stefnumáladeildar hjá NRC, greinir frá viðbrögðum Norðmanna við ástandinu í Sýrlandi og umræðum þar um stöðuna í Evrópu. Hann mun fjalla sérstaklega um opinbera umræðu í Noregi og framlög til málaflokksins í fjárlögum norskra stjórnvalda.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, setur fundinn og stjórnar umræðum. Fundurinn fer fram á ensku og er sem fyrr segir öllum opinn.
Að fundi loknum verður boðið upp á hressingu.

