Skip to main content
5. janúar 2016

Styrkir til doktorsnema við Háskóla Íslands

""

Sjálfseignarstofnun St. Jósefsspítala auglýsir lausa til umsókna tvo styrki til doktorsnáms við Háskóla Íslands tengda Rannsóknarstofu Landspítala og Háskóla Íslands í öldrunarfræðum (RHLÖ). Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2016.

Annar styrkurinn einskorðast við úrvinnslu gagna Öldrunarrannsóknar Hjartaverndar (AGES-RS I og II) og gögn sem tengja mætti þeirri rannsókn sem unnin yrði í húsakynnum RHLÖ. 

Hinn styrkurinn er opinn í þeim skilningi að hann einskorðast ekki við öldrunarrannsókn Hjartaverndar (en slík tengin er þó ekki heldur útilokuð) heldur við doktorsnema á öldrunarfræðasviði í víðum skilningi.

Doktorsneminn fær starfsaðstöðu við RHLÖ og skilyrði fyrir veitingu styrks er að rannsóknin sé unnin að stofni til á RHLÖ. Doktorsnemi og leiðbeinandi geta komið af hvaða námsbraut sem er innan Háskóla Íslands eða sambærilegra íslenskra stofnana. Doktorsneminn þarf að leggja fram rannsóknaráætlun sem miðast við form umsókna fyrir vísindastyrki Landspítala. Auk þess þarf að liggja fyrir samþykkt um doktorsnám  frá viðkomandi deild innan Háskóla Íslands. Doktorsnám sem þegar hefur verið hafið skal ekki vera lengra komið en sem nemur um það bil fjórðungi verkefnis.   

Leiðbeinendur doktorsnema við Háskóla Íslands og aðrar sambærilegar stofnanir á Íslandi geta sótt um styrk fyrir doktorsnemaverkefni með því fororði að doktorsneminn taki við verkefninu innan sex mánaða frá veitingu styrks. 

Sjálfseignarstofnun St. Jósefsspítala vill efla doktorsnám á sviði öldrunarfræða með ofangreindum hætti með árlegum styrkveitingum. Þannig er vonast til að lifandi samfélag myndist um öldrunarrannsóknir þar sem doktorsnemar geta haft stuðning hver af öðrum auk góðrar starfsaðstöðu. 

Umsóknir verða metnar af sjálfstæðri vísindanefnd. Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2016. 

Frekari upplýsingar veitir Pálmi V. Jónsson, prófessor, formaður stjórnar Sjálfseignarstofnunar St. Jósefsspítala, sími 543 9410, netfang: palmivj@landspitali.is

Senda skal umsókn á netfangið palmivj@landspita

St. Jósefsspítali
St. Jósefsspítali