Skip to main content
2. desember 2015

Ný bók eftir Davíð Þór Björgvinsson

Dr. Davíð Þór Björgvinsson prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands og við Lagadeild Kaupmannahafnarháskóla og fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, hefur sent frá sér bókina The Intersection of International Law and Domestic Law. A Theoretical and Practical Analysis.

Í bókinni er fjallað um fræðileg og hagnýt atriði sem varða tengslin milli þjóðaréttar og landsréttar og hvernig kenningar um tvíeðli og eineðli birtast í réttarframkvæmd. Í bókinni eru rædd ýmis lykilatriði varðandi gerð og fullgildingu þjóðréttarsamninga, meginreglur um sjálfkrafa gildi þjóðaréttar í landsrétti í eineðlisríkjum, bein réttaráhrif þjóðaréttar í landsrétti og meginreglur um skýringu landsréttar í samræmi við þjóðarétt. Með sérstakri áherslu á stöðu mannréttindasáttmála Evrópu er niðurstaða höfundar sú að hinar hefðbundnu meginkenningar um samband þjóðaréttar og landsréttar, þótt þær séu að ákveðnu marki gagnlegar, skýri ekki á fullnægjandi hátt þau fjölþættu áhrif sem  þjóðaréttur hefur í landsrétti gegnum lagasetningu og dómaframkvæmd. Í bókinni eru m.a. tekin fjölmörg dæmi úr íslenskri réttarframkvæmd, og hún borin saman við rétt annarra ríkja. Útgefandi bókarinnar er Edvard Elgar Publishing.

Sjá nánar: http://www.e-elgar.com/shop/the-intersection-of-international-law-and-do...

The Intersection of International Law and Domestic Law. A Theoretical and Practical Analysis
The Intersection of International Law and Domestic Law. A Theoretical and Practical Analysis