Skip to main content
2. nóvember 2015

Rannsóknir í félagsráðgjöf á Þjóðarspegli 2015

Að venju var mikið um fjölbreytt og fróðleg erindi á nýafstöðnum Þjóðarspegli. Þjóðarspegillinn er ráðstefna í félagsvísindum sem haldinn er í október ár hvert við Háskóla Íslands. Um 150 fyrirlestrar voru fluttir í ár í u.þ.b. 45 málstofum sem snertu á því sem efst er á baugi í rannsóknum á sviði félagsvísinda á Íslandi. 

Eftirtaldir kennarar og/eða nemendur við Félagsráðgjafardeild kynntu rannsóknir sínar á málstofum Þjóðarspegilsins að þessu sinni:

  • Ásdís Aðalbjörg Arnalds, Guðný Björk Eydal og Ingólfur V. Gíslason: Fæðingarorlof og þátttaka feðra í umönnun barna sinna þremur árum eftir fæðingu fyrsta barns 
  • Ásgeir Pétursson og Freydís Jóna Freysteinsdóttir: Vímuefnaneysla og önnur áhættuhegðun unglinga með þroskahömlun 
  • Erla Björg Sigurðardóttir: Getur skýrari löggjöf bætt velferðarþjónustu?
  • Freydís Jóna Freysteinsdóttir og Agnes Þorsteinsdóttir: Fangar sem afplána dóm fyrir ofbeldisbrot
  • Guðbjörg Björnsdóttir og Halldór S. Guðmundsson: Umfang svefns og sálfélagslegir erfiðleikar leikskólabarna
  • Halla Dröfn Jónsdóttir og Anni G. Haugen: Stuðningsúrræði starfsmanna barnaverndar: „Þetta er í raun bara það sem hefur alltaf verið gert“
  • Heimir Hilmarsson og Guðný Björk Eydal: Reynsla feðra sem ekki deila lögheimili með barni: „Þú átt engin börn“
  • Hervör Alma Árnadóttir og Halldór S. Guðmundsson: Starfsþróun og gagnreyndar aðferðir
  • Jóna Margrét Ólafsdóttir og Steinunn Hrafnsdóttir: Áhrif vímuefnasýki á fjölskyldur
  • Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir og Guðný Björk Eydal: Velferð og vá: Hlutverk félagsþjónustunnar
  • Margrethe Þórhildur Andreasen, Sara Lind Kristjánsdóttir og Hervör Alma Árnadóttir: Sumardvöl í sveit sem úrræði félags- og barnaverndaryfirvalda
  • Olga Ásrún Stefánsdóttir og Halldór Sigurður Guðmundsson: Farsæld og frelsi: Reynsla hjóna af starfslokum 
  • Sigurveig H. Sigurðardóttir: Þjónusta við eldri borgara: Góð eða ennþá betri?
  • Sirrý Sif Sigurlaugardóttir og Sigurveig H. Sigurðardóttir: Gagnreyndar aðferðir við félagslega ráðgjöf í málefnum aldraðra 
  • Steinunn Hrafnsdóttir og Ómar H. Kristmundsson: Hverjir taka þátt í sjálfboðastarfi mannúðarhreyfinga? Sjálfboðaliðar Rauða krossins á Íslandi

Í ráðstefnuvikunni var enn fremur veggspjaldasýning þar sem fjölmargir fræðimenn, meistara- og doktorsnemar kynna rannsóknir sínar. Eftirtaldir fræðimenn við deildina kynntu rannsóknir sínar á veggspjaldasýningunni:

  • Sigrún Júlíusdóttir Staða barns við andlát foreldris: Rannsókn á aðstæðum barna, sjónarhorni fagfólks, ásamt lagaramma
  • Sigurveig H. Sigurðardóttir og Sigrún Júlíusdóttir Relationships in later life: Grandparents and grandchildren
Þjóðarspegillinn er árleg ráðstefna í félagsvísindum við Háskóla Íslands
Þjóðarspegillinn er árleg ráðstefna í félagsvísindum við Háskóla Íslands