Þjóðarspegillinn á föstudag

Hátt í 200 erindi verða flutt í rúmlega 50 málstofum á hinum árlega Þjóðarspegli, ráðstefnu í félagsvísindum, sem fram fer föstudaginn 30. október í Háskóla Íslands. Þetta er í sextánda sinn sem ráðstefnan er haldin.
Á ráðstefnunni koma saman bæði fræðimenn og meistara- og doktorsnemar í félagsvísindum innan og utan Háskóla Íslands og kynna rannsóknir sínar sem ýmist er nýlokið eða standa yfir. Líkt og fyrri ár er úr ótal spennandi erindum að velja en þau snerta m.a. afbrotafræði, jafnréttismál, söfn og menningu, ferðamennsku, börn og barnavernd, alþjóðastjórnmál, samfélagsábyrgð, fötlun og samfélag og fjármál og hagfræði svo eitthvað sé nefnt. Þá er einnig efnt til veggspjaldasýningar í vikunni þar sem rannsóknir kennara og nemenda eru í forgrunni.
Ráðstefnan hefst formlega í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands kl. 9 á föstudag en þá mun Juliet Schor, prófessor í
félagsfræði við Boston College og höfundur fjölmargra bóka og fræðigreina um neyslusamfélag nútímans, halda fyrirlestur um deilihagkerfið. Erindið nefnir hún „Samneysla: nýtt fyrirbæri eða sama gamla neysluhyggjan?“ . Í því mun Schor m.a. velta upp þeirri spurningu hvort deilihagkerfið sé sú töfralausn frá umhverfismengandi einnota samfélaginu sem því var ætlað að vera eða enn eitt gróðatækið, en Schor vinnur að bók um efnið um þessar mundir. Erindið er í boði rannsóknarverkefnisins „The Reality of Money“ við Heimspekistofnun, Landverndar og Háskóla Íslands á Þjóðarspeglinum.
Boðið er upp á morgunkaffi á Litla Háskóatorgi kl 8.30 til 9.00 og síðar um daginn, kl. 17.00, verða léttar veitingar í boði á sama stað.

