Bótaréttur II eftir Eirík og Viðar Má komin út

Bókaútgáfan Codex hefur nú gefið út ritið Bótaréttur II eftir Eirík Jónsson, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands, og Viðar Má Matthíasson hæstaréttardómara.
Ritið er hluti af heildarverki sem ætlað er að ná með heildstæðum hætti utan um helstu þætti íslensks bótaréttar en með því er átt við skaðabótarétt, vátryggingarétt og bótaúrræði félagsmálaréttar vegna líkamstjóna. Bókin fjallar um tvö svið bótaréttar, það er almennan hluta vátryggingaréttar og bótaúrræði félagsmálaréttar vegna líkamstjóns.
Sá þáttur ritsins er fjallar um vátryggingarétt greinist í sjö hluta. Sá fyrsti felur í sér inngang þar sem m.a. er fjallað um vátryggingafélög, miðlun vátrygginga og úrlausnaraðila á sviði vátryggingaréttar. Annar hluti fjallar um vátryggingarsamninginn, þ.á m. um stofnun, túlkun og slit slíkra samninga sem og um iðgjaldið og greiðslu þess. Í þriðja hluta er fjallað um réttarsambandið og ýmsar skyldur aðila en í fjórða hluta um atvik sem takmarkað geta ábyrgð vátryggingarfélagsins. Fimmti hluti ritsins gerir grein fyrir almennum reglum um ábyrgð vátryggingarfélagsins og sá sjötti fjallar um rétt þriðja manns til vátryggingarbóta. Í sjöunda hluta er loks vikið að uppgjöri vátryggingarbóta og brottfalli réttar til þeirra.
Sá þáttur ritsins er fjallar um bótareglur félagsmálaréttar hefur að geyma stutt yfirlit um önnur fjárhagsleg úrræði en krafa um skaðabætur eða vátryggingarbætur sem til álita koma fyrir einstakling sem orðið hefur fyrir líkamstjóni eða öðru áfalli. Þar er síðan vikið nánar að þeim þeim tveimur tegundum bóta sem hvað mesta hagnýta þýðingu hafa í tengslum við skaðabætur og vátryggingar, annars vegar bótum úr slysatryggingum almannatrygginga og hins vegar örorkulífeyri frá lífeyrissjóðum.

