Viðskiptafræðideild valin til að halda EURAM 2018

Ein stærsta ráðstefna í viðskiptafræðum í Evrópu verður haldin á Íslandi 2018.
Stjórn European Academy of Management (EURAM) hefur valið Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands til að skipuleggja og stjórna einni stærstu ráðstefnu í viðskiptafræðum í Evrópu árið 2018. Um 1200-1400 fræðimenn munu koma á ráðstefnuna sem haldin verður í júní.
„Research in Action“ er yfirskrift ráðstefnunnar árið 2018 en markmiðið með henni er að tengja betur saman fræðilega umræðu og praktíska nálgun ásamt því að hvetja til nýsköpunar í aðferðafræði og vali á viðfangsefnum. Sérstök áhersla verður lögð á viðfangsefni sem tengjast Íslandi með beinum hætti, þar sem Íslendingar geta verið leiðandi í rannsóknum.
EURAM var stofnað árið 2001 og eru 49 þjóðir aðilar að samtökunum. Árleg ráðstefna EURAM er langmikilvægasti viðburður samtakanna og hefur haft leiðandi hlutverk í að efla rannsóknir í viðskiptafræðum við evrópska háskóla. Margir þekktustu fræðimenn Evrópu, Asíu, Ástralíu og Ameríku eru fastagestir á ráðstefnunni og þema ráðstefnunnar hefur haft mikil áhrif á fræðilega umræðu í Evrópu og víðar.
Ráðstefnustjóri og formaður undirbúningsnefndar EURAM 2018 er Eyþór Ívar Jónsson. Hann er jafnframt forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar í stjórnarháttum við Háskóla Íslands og lektor við Viðskiptafræðideild.

