Skip to main content
13. júní 2016

Viðskiptafræðideild í samstarf við Creditinfo

Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og Creditinfo hafa gert samstarfssamning um aðgengi að öllum gögnum Creditinfo um íslensk hlutafélög, hluthafa og ársreikninga fyrir tímabilið 2008 til 2014.

Áætlað er að verðmæti gagnanna sé um 450 milljónir króna. Gögnin verða notuð í víðtæku rannsóknarstarfi Guðrúnar Johnsen, lektors í fjármálum. Hún leiðir hóp rannsakenda frá Stanford háskóla, Paris School of Economics (PSE) og University of Maryland við að greina fyrirtækjasamstæður á Íslandi, myndun þeirra, skuldsetningu og eiginfjárfjármögnun.

Með samningnum er lagður grunnur að því efla rannsóknastarf Háskólans á íslensku atvinnulífi með því að auka aðgengi að gögnum og tryggja þannig jafnframt gæði vísindastarfsins.

Af þessu tilefni sagði Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs að samstarf sem þetta, milli Háskólans og atvinnulífsins, væri algerlega ómetanlegt:

 „Það sést vel á verðmæti gagnanna að helsti Þrándur í götu rannsakenda í fjármálum og rekstrarhagfræði á Íslandi er aðgengi að ítarlegum, vel lýstum og samkvæmum gögnum á eindargrunni. Söfnun slíkra gagna er geysilega kostnaðarsöm, en einnig mjög ábatasöm í rannsóknarlegum tilgangi og fyrir samfélagið í heild.  Slíkar rannsóknir eru algengar í stærri löndum og teljast nauðsynlegar í árangursríkri stefnumótun samfélagsins; svo að mótun laga og reglna geti farið fram á óhlutdrægan hátt, leiddar af staðreyndum og viðurkenndri aðferðarfræði sem vísindin hafa komið sér upp, sem aftur stuðla að heilbrigðu viðskiptalífi.“

Runólfur Smári Steinþórsson, deildarforseti Viðskiptafræðideildar, sagði við sama tilefni að óskandi væri að áframhaldandi samstarf yrði á þessu í fyllingu tímans, svo hægt verði að takast á við fleiri spurningar sem vaknað geta í síbreytilegu umhverfi fyrirtækja á Íslandi.

Brynja Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, sagði að félagið væri stolt af því að geta stutt mynduglega við rannsóknastarf Háskóla Íslands. „Það er virkilega ánægjulegt að gögn Creditinfo geti gert rannsóknastarf af þessari stærðargráðu kleift. Okkar markmið er að stuðla að heiðarlegu og stöðugu atvinnulífi á Íslandi sem byggir á gegnsæi og trausti, og þetta samstarf er liður í því. Góðar grunnrannsóknir eru grundvöllur fyrir því að styðja við og stuðla að heilbrigðum vexti í íslensku atvinnulífi.“

Viðskiptafræðideild vill færa Creditinfo sérstakar þakkir fyrir þetta mikilvæga framlag til deildarinnar og í þágu vísindanna.

Á þessum hlekk má lesa viðtal við Guðrúnu Johnsen sem birtist í Fréttablaðinu í tilefni af samningnum: Gagnasamningur fyrir 450 milljónir króna.

Runólfur Smári Steinþórsson, Guðrún Johnsen, Brynja Baldursdóttir, Hákon Stefánsson og Daði Már Kristófersson.
Runólfur Smári Steinþórsson, Guðrún Johnsen, Brynja Baldursdóttir, Hákon Stefánsson og Daði Már Kristófersson.