Vel á áttunda þúsund umsóknir um nám við HÍ

Liðlega 7.600 umsóknir um grunn- og framhaldsnám bárust Háskóla Íslands fyrir komandi skólaár, en umsóknarfrestur um grunnnám rann út sunnudaginn 5. júní sl. Að þessu sinni bárust 4.500 umsóknir um grunnnám og rúmlega 3.100 um framhaldsnám. Til samanburðar má geta þess að hátt í 4.000 nemendur brautskráðust með stúdentspróf frá framhaldsskólum landsins um síðustu áramót og í vor.
Umsóknir um grunnnám skiptust svo á fimm fræðasvið Háskólans:
Á Félagsvísindasviði bárust flestar umsóknir í viðskiptafræði, alls 390, en greinin hefur um nokkurt skeið verið sú vinsælasta innan skólans. Þá sóttu rúmlega 120 um nám í lögfræði og nýtir Lagadeild líkt og undanfarin ár sérstakt aðgangspróf, A-próf, til inntöku nemenda. Hagfræðideild nýtir einnig A-prófið ásamt sérstöku stærðfræðiprófi og að þessu sinni sóttu ríflega 60 manns um nám í deildinni. Enn fremur stefna tæplega 90 á nám í stjórnmálafræði og rúmlega 80 á nám í félagsráðgjöf. Umsóknir á Félagsvísindasviði eru samtals rúmlega 870.
Flestar umsóknir í grunnnám bárust Heilbrigðisvísindasviði eða 1.135. Í þeim hópi eru 297 nemendur sem hafa skráð sig í inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfun í Læknadeild, 246 í læknisfræði og 51 í sjúkraþjálfun. Inntökuprófið fer fram 9. og 10. júní nk. og eru teknir inn 35 nemendur í sjúkraþjálfun og 48 í læknisfræði. Þess má geta að þeir sem þreyta prófið en fá ekki inngöngu í Læknadeild geta skráð sig í aðrar deildir Háskóla Íslands fram til 20. júlí nk. Flestar umsóknir í einstaka námsleið innan Heilbrigðisvísindasviðs bárust í sálfræði, eða 314. Þá sækjast tæplega 170 eftir inngöngu í hjúkrunarfræði en líkt og í fyrra nýtir Hjúkrunarfræðideild A-próf til inntöku nemenda ásamt frammistöðu í tilteknum greinum stúdentsprófs. Enn fremur sóttu 84 um nám í tannlæknisfræði og þar verða sem fyrr samkeppnispróf að loknu fyrsta misseri.
Hugvísindasviði bárust alls 1.023 umsóknir. Flestar þeirra eru um nám í íslensku sem öðru máli, samtals 432 umsóknir um BA-nám eða styttra hagnýtt nám. Nærri 300 umsóknir bárust um nám í þeim erlendu tungumálum sem eru í boði við skólann og þá hyggjast um 50 nemendur hefja nám í sagnfræði og svipaður fjöldi í heimspeki.
Nærri 560 umsóknir bárust Menntavísindasviði að þessu sinni. Flestar þeirra voru í íþrótta- og heilsufræði, eða 112, en eins og kunnugt er verður námsleiðin kennd í fyrsta sinn í Reykjavík nú í haust. Til samanburðar voru umsóknir 34 í fyrra. Þá bárust rúmlega 100 umsóknir um grunnnám í grunnskólakennslu, liðlega 90 í þroskaþjálfafræði og rúmlega 80 í uppeldis- og menntunarfræði. Loks voru umsóknir um B.Ed.-nám í leikskólakennarafræði og grunndiplóma í leikskólafræði samanlagt um 80.
Rúmlega 940 umsóknir bárust Verkfræði- og náttúruvísindasviði og þar er tölvunarfræði sem fyrr vinsælasta greinin með 210 umsóknir. Ferðamálafræði er einnig eftirsótt og stefna rúmlega 130 á nám í þeirri grein. Háskólinn býður upp á fjölbreytt nám í verkfræði og voru umsóknir í námsleiðir innan verk- og tæknifræði samtals tæplega 350 talsins. Umsóknum fjölgar í vélaverkfræði og umhverfis- og byggingarverkfræði frá fyrra ári og reyndust þær rúmlega 60 í fyrrnefndu námsleiðinni og um 50 í þeirri síðarnefndu.
Umsóknarfrestur um framhaldsnám í flestum námsleiðum við Háskóla Íslands var til 15. apríl sl. Af 3.100 umsóknum um nám á framhaldsstigi bárust rúmlega 1.200 Félagsvísindasviði en næstflestar umsóknir um framhaldsnám bárust Menntavísindasviði, eða nærri 650. Þá eru ótaldir ríflega 120 umsækjendur um þverfræðilegt framhaldsnám á námsleiðinni Menntun framhaldsskólakennara. Samtals reyndust umsóknir í þverfræðilegu framhaldsnámi rétt um 350, þar af 80 um nám í umhverfis- og auðlindafræði.
Vel á áttunda þúsund umsóknir bárust Háskóla Íslands fyrir skólaárið 2016-2017.