Þriðja þing félagsráðgjafa haldið í febrúar

Þing félagsráðgjafa var haldið þann 19. febrúar sl. Yfirskrift þingsins var Félagsráðgjöf - þróun og gæði. Aðalfyrirlesari var Beth Anderson, yfirmaður rannsókna hjá SCIE (Social Care Institute of Excellence), sem kynnti gæðaverkefni sem stofnunin vann með ungu fólki með það að markmiði að búa til gæðavísa í félagsþjónustu fyrir börn.
Yfirskrift erindis hennar var Quality Social Care: Looked after Children - Supporting young people in accessing a quality service. Þingið var vel sótt og mættu 340 manns. Flestir kennarar Félagsráðgjafardeildar fluttu erindi á þinginu eða stjórnuðu málstofum.
Undirbúningsnefnd Félagsráðgjafaþings 2016:
María Rúnarsdóttir, Félagsráðgjafafélagi Íslands
Sigurveig H. Sigurðardóttir, Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands
Steinunn Bergmann, ÍS-FORSA
Guðrún Elva Arinbjarnardóttir, Hollvinafélagi
Elísabet Karlsdóttir, RBF
Sjá heimasíðu Félagsráðgjafafélag Íslands

