Stjórnmálafræðinemar í vetrarskóla um smáríki í Vilnius

Vikuna 24.-30. janúar fóru þrír nemendur við Stjórnmálafræðideild, þeir Andri Yrkill Valsson, Vladyslav Stepanets og Dimitrios Tsikas, til Vilnius í Litháen og tóku þar þátt í vetrarskóla um smáríki við háskólann í Vilnius. Til umfjöllunar var breytt landslag í öryggismálum Evrópu eftir átökin í Úkraínu og á Krímskaga og hvað aukið spennustig í Austur-Evrópu þýðir fyrir stöðu smáríkja í álfunni.
Auk okkar fulltrúa voru þar nemendur frá háskólum í Vilnius, Tallinn, Möltu, Kaupmannahöfn og St. Andrews í Skotlandi og tóku þátt í mjög líflegum umræðum um málefnin. Auk þess komu fyrirlesarar víða að og Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt við Stjórnmálafræðideild HÍ, flutti þar meðal annars erindi um samfélagslegt öryggi.
Úr varð fjölbreytt og skemmtileg vika og voru nemendur sammála um að vetrarskólinn hefði dýpkað skilning þeirra á stöðu smáríkja í Evrópu í breyttu landslagi öryggismála, og þeim nýjum áskorunum sem við blasa."







