Stjórnarhættir fyrirtækja - Opinn fundur 4. mars 2015

Kristinn M. Reynisson Mag.Jur., LL.M. og doktorsnemi við Lagadeild Háskólans í Árósum, flytur erindi á opnum fundi Lagastofnunar miðvikudaginn 4. mars kl. 12-13.15 í Lögbergi, stofu 101.
Kristinn mun fjalla um hvar mörk löggjafarvaldsins liggja við innleiðingu góðra stjórnarhátta í fyrirtækjum.Velt er
upp spurningunni hvort þess sjáist merki, þ.m.t. utan Íslands, að handhafar löggjafarvaldsins hafi gefið til kynna hvaða
stjórnarhættir geti talist „góðir“.
Vikið verður að dæmum úr EES/ESB- rétti um stefnumörkun og inngrip löggjafans er varða stjórnarhætti fyrirtækja,
m.a. í tilefni af yfirstandandi endurskoðunar á stefnuvísum Efnahags- og framfarastofnunarinnar um stjórnarhætti fyrirtækja
(OECD Principles of Corporate Governance).
Kristinn M. Reynisson útskrifaðist frá Lagadeild Háskóla Íslands árið 2011 og lauk LL.M námi við Háskólann í Stokkhólmi árið 2012 með áherslu á samkeppnisrétt. Hann stundar nú doktorsnám í félagarétti við Lagadeild Háskólans í Árósum.
Fundarstjóri: Stefán Már Stefánsson, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands.
Allir velkomnir.

