6. apríl 2016
Samstarfssamningur undirritaður

Föstudaginn 1. apríl sl. var undirritaður þriggja ára samstarfssamningur Félagsvísindasviðs og Heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Um er að ræða samstarf um diplómanám í starfsendurhæfingu sem skipulagt verður sameiginlega af Félagsráðgjafardeild HÍ og Framhaldsnámsdeild HA. Markmiðið með samstarfinu er að stuðla að vandaðri menntun og rannsóknum í starfsendurhæfingu.
Diplómanám í starfsendurhæfingu telur 60 einingar á meistarastigi. Námið er þverfaglegt og verður áhersla lögð á að nýta bæði fjarnám og staðbundið lotunám.

