Skip to main content
4. júlí 2016

Rúmlega 700 brautskráðust frá Félagsvísindasviði

""

Á þriðja þúsund kandídatar voru brautskráðir úr grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands í júní, en líkt og undanfarin ár voru tvær brautskráningarathafnir í Laugardalshöll.

Rúmlega sjö hundruð kandídatar brautskráðust frá Félagsvísindasviði, þar af 152 frá Félags- og mannvísindadeild, 80 frá Félagsráðgjafardeild, 31 frá Hagfræðideild, 124 frá Lagadeild, 106 frá Stjórnmálafræðideild og 224 frá Viðskiptafræðideild.

Meðal brautskráðra voru fyrstu nemendurnir sem útskrifast með MIS-gráðu í upplýsingafræði frá Félags- og mannvísindadeild.

Samtals brautskráðust 2108 kandídatar frá Háskóla Íslands laugardaginn 25. júní með 2127 prófskírteini.

410 kandídatar brautskráðust frá Háskóla Íslands í febrúar síðastliðnum og því er heildarfjöldi brautskráðra á árinu 2518.

Myndir frá athöfninni má sjá hér
 

Rúmlega sjö hundruð kandídatar brautskráðust frá Félagsvísindasviði í júní 2016
Rúmlega sjö hundruð kandídatar brautskráðust frá Félagsvísindasviði í júní 2016