Skip to main content
7. mars 2016

Ræða um stjórnarskrárbreytingu tengda náttúruauðlindum

""

Lagastofnun Háskóla Íslands og Lögfræðingafélag Íslands halda áfram að ræða um tillögur að breytingum á stjórnarskrá Íslands og efna til málþings um tillögur sem lúta að ákvæðum um vernd náttúru og umhverfis og náttúruauðlindir. Málþingið fer fram miðvikudaginn 9. mars kl. 12.00-13.30 í stofu 101 í Lögbergi, byggingu Lagadeildar Háskóla Íslands.

Stjórnarskrárnefnd skilaði á dögunum tillögum að þremur frumvörpum til breytingar á stjórnarskránni og má lesa þau á heimasíðunni stjornarskra.is. Meðal annars er lagt til að á eftir 78. gr. stjórnarskrárinnar komi ný grein. Hún kveði á um að auðlindir Íslands tilheyri íslensku þjóðinni að þær beri að nýta á sjálfbæran hátt og til hagsbóta landsmönnum öllum.  Þar kemur einnig fram að náttúruauðlindir og landsréttindi, sem ekki séu háð einkaeignarrétti, séu þjóðareign og að jafnaði skuli „taka eðlilegt gjald fyrir heimildir til nýtingar auðlinda sem eru í eigu íslenska ríkisins eða þjóðareign.“

Framsöguerindi á máþinginu flytja  Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands, sem fjallar um ákvæði um vernd náttúru og umhverfis, og Helgi Áss Grétarsson, dósent við Lagadeild Háskóla Íslands, sem fjallar um ákvæði um náttúruauðlindir.

Þátttakendur í pallborði verða auk þeirra þeir Daði Már Kristófersson, dósent í hagfræði og forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar. Fundarstjóri er María Thejll, forstöðumaður Lagastofnunar Háskóla Íslands.

Málþingið er öllu opið og aðgangur ókeypis.

Stjórnarskrá
Stjórnarskrá