Skip to main content
3. mars 2016

Ráðstefna um góða stjórnarhætti

""

Ráðstefnan Exemplary Corporate Governace - The future of Gatekeeping and Board Leadership verður haldin í Háskóla Íslands 15. mars n.k. Leiðandi stjórnarmenn á Íslandi og innlendir og erlendir fræðimenn ræða um hvernig má efla góða stjórnarhætti á Íslandi.

Tilgangur ráðstefnunnar er að vekja athygli á mikilvægi góðra stjórnarhátta, alþjóðlegum straumum og stefnum í stjórnarháttum og vinnu íslenskra stjórnarmanna við að efla stjórnarhætti.

Fjöldi fyrirtækja hafa fengið viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum eftir úttekt sérstakra úttektaraðila á stjórnarháttum og Rannsóknarmiðstöðvar í stjórnarháttum. Ráðstefnan verður stærri í sniðum en á síðasta ári. Fyrir hádegi verður lögð áhersla á aðalfyrirlesara ráðstefnunnar John C. Coffee, sem er einn af virtari lögfræðiprófessorum Bandaríkjanna og einn af leiðandi hugmyndafræðingum um góða stjórnarhætti.

Ráðstefna um góða stjórnarhætti
Ráðstefna um góða stjórnarhætti